Selfoss fær Þór Llorens að láni frá ÍA

Auglýsing



Þór Llorens Þórðarson skrifaði í dag undir lánssamning við knattspyrnudeild Selfoss en Knattspyrnufélag ÍA lánar hann á Selfoss út komandi leiktíð.

Þetta kemur fram á fréttavefnum Sunnlenska.

Þór verður ekki eini Skagamaðurinn í herbúðum Selfoss því Skagamaðurinn Dean Martin er þjálfari liðsins.  Dean tók við liði Selfoss um mitt sumar í fyrra en liðið féll úr Inkasso-deildinni og leikur í 2. deild í sumar.

Þór, sem er 19 ára gamall, er uppalinn hjá ÍA og spilaði með 2. flokki félagsins í fyrra auk þess að leika 9 leiki með liði Kára í 2. deildinni.

Hann hefur einnig leikið þrjá landsleiki með U17 ára liði Íslands.

Þór er varnarmaður að upplagi, með baneitraðan vinstri fót og mun einnig nýtast vel í föstum leikatriðum en hann raðaði inn mörkum fyrir 2. flokk ÍA úr aukaspyrnum í fyrrasumar.

Auglýsing



Auglýsing