Gísli áfram í stjórn KSÍ – Guðni sigraði með yfirburðum



Einn Skagamaður verður í stjórn Knattspyrnusambands Íslands á næsta starfsári.

Gísli Gíslason verður áfram í stjórn KSÍ en 73. ársþing KSÍ fór fram um liðna helgi á Hótel Nordica Reykjavík.

Guðni Bergsson var þar endurkjörinn sem formaður KSÍ til næstu tveggja ára. Hann hafði mikla yfirburði í kjörinu en Geir Þorsteinsson bauð sig fram gegn Guðna. Guðni fékk 119 atkvæði en Geir 26.

Í aðalstjórn KSÍ voru fimm frambjóðendur í kjöri um fjögur sæti og urðu eftirfarandi í efstu fjórum sætunum:

• Borghildur Sigurðardóttir | Kópavogi
• Þorsteinn Gunnarsson | Mývatnssveit
• Magnús Gylfason | Hafnarfirði
• Ásgeir Ásgeirsson | Reykjavík

Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2020):

• Gísli Gíslason | Akranesi
• Ingi Sigurðsson | Vestmannaeyjum
• Ragnhildur Skúladóttir | Reykjavík
• Valgeir Sigurðsson | Garðabæ

Eftirtaldir aðilar voru kjörnir sem aðalfulltrúar landsfjórðunga:

• Jakob Skúlason – Vesturland
• Björn Friðþjófsson – Norðurland
• Bjarni Ólafur Birkisson – Austurland
• Tómas Þóroddsson – Suðurland

Eftirtaldir voru kjörnir sem varamenn í aðalstjórn:

• Þóroddur Hjaltalín | Akureyri
• Guðjón Bjarni Hálfdánarson | Árborg
• Jóhann Króknes Torfason | Ísafirði

Auglýsing



Auglýsing