Ágúst nýr formaður Sundfélags Akraness – traust staða félagsins



´
Miklar breytingar voru gerðar á stjórn Sundfélags Akraness á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær.

Þaulreyndur sundkappi og fyrrum íþróttamaður Akraness, Ágúst Júlíusson, tekur við formennskunni, af Trausta Gylfasyni.

Harpa Finnbogadóttir varaformaður og Ingibjörg Júlíusdóttir gengu úr stjórn en í þeirra stað voru kjörin Þórdís Guðmundsdóttir, Ruth Jörgengsdóttir Rauterberg

Fundarstjórn var í höndum Karítasar Jónsdóttur sem stýrði fundinum af röggsemi. Fundurinn hófst með ávarpi fráfarandi formanns, Trausta Gylfasonar sem flutti skýrslu félagsins fyrir árið 2018.

Fram kom í máli hans að starf félagsins er afar blómlegt og fór hann yfir árangur iðkenda ásamt þeim viðurkenningum og verðlaunum sem þeir hafa fengið.

Ársreikningur félagsins var lagður fram af gjaldkera félagsins, Daníeli Sigurðssyni sem samþykktur var einróma. Heildartekjur félagsins voru um 21,5 milljónir og heildargjöld voru um 21,2 milljónir og var tekjuafgangur því um 300 þúsund sem staðfestir trausta stöðu félagsins.

Endurkjörin í stjórn voru Guðrún Guðbjarnadóttir, Daníel Sigurðsson, Kristin Björg Jónsdóttir og Svava Hrund Guðjónsdóttir.
Fráfarandi stjórnarmenn fengu blómvönd í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.

Hörður Oddfríðarson formaður Sundsambands Íslands ávarpaði fundinn og þakkaði gott samstarf við félagið og nefndi sérstaklega fráfarandi formann í því sambandi.

Einnig ávarpaði Hörður Helgason, fulltrúi í framkvæmdastjórn íþróttabandalags Akraness fundinn og lýsti aðdáun sinni á iðkendum og þjálfurum sem sinna sundíþróttinni af dugnaði við mismunandi aðstæður.

Hörður nefndi einnig m.a. mikilvægi sjálfboðaliða sem sinna fjölbreyttum störfum sem skipta félögin miklu máli.

Trausti, Ágúst og Harpa.

Auglýsing



Auglýsing