Skagamaður í fremstu röð hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims


Skagamaðurinn Sturlaugur Haraldsson er í skemmtilegu viðtali í Fiskifréttum.

Sturlaugur, sem var á árum áður í hinu sigursæla ÍA liði í knattspyrnu, er í dag framkvæmdastjóri hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims.

Fyrirtækið heitir Norebo og er einn stærsti framleiðandi á sjófrystum þorsk- og ýsuflökum í heiminum.

Sturlaugur heldur tvö heimili, í London og á Akranesi þar sem hann býr með eiginkonu sinni Þórunni Önnu Baldursdóttur skurðhjúkrunarfræðingi og börnum þeirra fimm.

Viðtalið má lesa í heild sinni hér á vef Fiskifrétta.