Skagahraðlestin – nýr og áhugaverður hlaðvarpsþáttur


Björn Þór Björnsson og Snorri Kristleifsson settu í gær í loftið fyrsta þáttinn af Skagahraðlestinni.

Um er að ræða hlaðvarpsþátt sem er framleiddur af stuðningsmönnum ÍA í knattspyrnu.

Snorri sér um tæknimálin en Björn Þór er stjórnandi þáttarins.

Það verða margir sem koma um borð í Skagahraðlestina í sumar. Aðilar sem tengjast félaginu með einum eða öðrum hætti.

Daníel Heimisson, Benedikt Valtýsson og Margrét Ákadóttir voru fyrstu viðmælendur þáttarins.

Smelltu hér til að hlusta eða hér fyrir neðan.

Þátturinn hefur það að markmiði að allir geta haft gaman af, hvort sem fólk fylgist með knattspyrnu eður ei.

Lítið verður rætt um nýaflokna leiki eða taktísk atriði en því meira um eftirminnileg atvik úr sögu félagsins og annað skemmtilegt sem tengist því.