„Sólríkir og bjartir dagar framundan“


Congo Bongo með lagið Human

Tónlistarfrændurnir Hreinn Elías og Sigurmon Hartmann sem hafa skipað ýmsar sveitir í gegnum tíðina eru mættir til leiks með nýja hljómsveit sem ber heitið Congo Bongo. Hreinn Elías og Sigurmon eru með sterka Skagatengingu

„Þetta er nafn sem gefur til kynna sólríka og bjarta daga framundan í útgáfu tónlistar okkar frænda.“

Fyrsta smáskífa Congo Bongo „Human“ kom nýverið út á stafrænum tónlistarveitum.

Smelltu hér til að hlusta á Spotify.

„Við tókum ákvörðun með Human að vera berskjaldaðir og óhræddir. Það eina sem við getum gert er að skapa frá hjartanu og vera sjálfum okkar samkvæmir. Allt annað er tímasóun.”

Hreinn og Sigurmon eru nýkomnir úr borg englanna, Los Angeles, þar sem þeir sóttu tónlistarráðstefnu ásamt fríðu föruneyti frá Norðurlöndunum.

„Okkur var boðið að sækja ráðstefuna og hittum þar innsta kjarna tónlistarbransans í Los Angeles. Tengslin sem við náðum að mynda eiga eftir að reynast okkur ótrúlega vel í framtíðinni. Þetta var ómetanlegt tækifæri og frábært upphaf á vegferð okkar sem Congo Bongo. Við erum ótrúlega þakklátir ÚTÓN og öllum þeim sem stóðu að ráðstefnunni.”

Sigurmon Hartmann er sonur Kolbrúnar Söndru Hreinsdóttur og Sigurður Jónssonar knattspyrnumanns – sem eru bæði búsett á Akranesi.

Hreinn Elíasson er bróðursonur Kolbrúnar. Skagamaðurinn Elías Hartmann Hreinsson, er faðir hans og Halldóra Halla Jónsdóttir frá bænum Gröf er móðir Hreins.