94% foreldra styðja áframhaldandi símabann í Grundaskóla


Í byrjun skólaárs var tekin sú ákvörðun að banna alfarið notkun snjallsíma á skólatíma í Grundaskóla á Akranesi.

Um tímabundið bann var að ræða en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að bannið verði í gildi þar til annað verður ákveðið.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á foreldra barna í Grundaskóla.

„Í vikunni fyrir vetrarfrí var send út könnun til allra foreldra þar sem einfaldlega var spurt hvort foreldrar vildu styðja áframhaldandi símabann. Svörun var góð og niðurstaðan var afgerandi þar sem 94% foreldra studdu áframhaldandi símabann þannig að við höldum okkur við það áfram ótímabundið,“ segir Flosi Einarsson aðstoðarskólastjóri Grundaskóla í tilkynningunni.
http://localhost:8888/skagafrettir/2019/09/20/farsimabann-tekid-upp-hja-nemendum-i-grundaskola-toku-litid-mark-a-settum-reglum/