Flottur árangur hjá kraftmiklum klifrurum á Íslandsmóti í grjótglímu


Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu fór fram um s.l. helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Alls tóku sjö keppendur frá ÍA þátt og með þeim var fjölmennt fylgdarlið foreldra og forráðamanna..

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klifurfélagi ÍA.

Þetta var fjórða og jafnframt lokamótið í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Það var því mikil spenna í loftinu áður en keppnin hófst.

Mótið var fjórða og síðasta mótið í keppninni um Íslandsmeistartitilinn og spennan því í hámarki þegar mótið hófst.

Keppendur klifruðu tuttugu leiðir, sem leiðasmiðir Klifurhússins og ÍA höfðu sett upp, og höfðu keppendur tvo klukkutíma til að klára verkefnið.

Í C-flokki stúlkna hafnaði Sylvía Þórðardóttir í þriðja sæti en heildarstigafjöldi hennar eftir fjögur mót dugði henni í 1.-2. sæti í mótaröðinni og því þurfti bráðabana til að skera úr um Íslandsmeistaratitilinn.

Í bráðabana klifraði Sylvía á móti Ásthildi Elfu úr Hafnarfirði, en þær stöllur hafa verið nokkurn vegin hnífjafnar á á mótum ársins. Í bráðabana sigrar sá klifrari sem klifrar lengra í bráðabanaleið á fjórum mínútum og eftir tvær leiðir voru þær stöllur hnífjafnar og spennan því gríðarleg fyrir þriðju leið. Ásthildur byrjaði og klifraði vel og uppskar 8+ stig eftir leiðina, sem innhélt erfiðar jafnvægishreyfingar á litlum tökum og stórt stökk upp í erfitt tak. Sylvía klifraði vel, náði byrjuninni og stökkinu en vantaði herslumuninn til að ná lengra og endaði því með 7 stig og vel verðskulduð silfurverðlaun fyrir ÍA.

Aðrir klifrarar í C- og B flokki náðu ekki á verðlaunapall að þessu sinni en þeir Rúnar Sigurðsson, Sverrir Elí Guðnason og Ellert Kári Samúelsson röðuðu sér í 4-6 sæti í C-flokki drengja og Tinna Rós Halldórsdóttir í það sjötta í stúlknaflokki.

Í fullorðinsflokki klifraði Brimrún Eir Óðinsdóttir. Brimrún Eir lauk níu af tuttugu leiðum mótsins og landaði verðskuldað bronsverðlaunum að lokinni Íslandsmeistarmótaröðinni.

Í allt prýðilegasti árangur hjá ÍA fá klifrarar nú verðskuldað frí frá keppnum fram yfir áramót.

Hér er myndband frá því þegar Sylvía Þórðardóttir er að klifra.