„Strembið að eiga við þorskinn,“ segir Eiríkur skipstjóri á Akurey AK


,Heilt yfir má segja að aflabrögðin hafi verið alveg þokkaleg. Því er þó ekki að neita að það hefur verið strembið að eiga við þorskinn,“ segir Eiríkur Jónsson, Skagamaðuri og skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK í viðtali sem birt er á heimasíðu útgerðarfélagsins Brims.

Skipið fór frá Reykjavík á fimmtudagskvöld eftir um 130 tonna veiðiferð á Vestfjarðamið.

,,Ég var í fríi í síðasta túr en þá var farið allt austur á Strandagrunn. Í lokin var svo endað á karfaveiðum í Víkurálnum. Við erum nú komnir í kantinn og veiðin virðist ekki vera neitt sérstök. Samkvæmt nýjustu fréttum eru menn að fá um tonn af þorski á togtímann hér fyrir norðan okkur og á Halanum þannig að það er ekki hægt að segja að mikill kraftur sé í veiðinni.“

Að sögn Eiríks fara fáar sögur af ufsaveiðum nú um stundir.

,,Það kom skot í veiðina bæði á Sléttugrunni og Sporðagrunni á dögunum en veiðin stóð stutt á báðum stöðum. Mér skilst að veiðin sé frekar dauf fyrir austan en þar hafa menn verið að fá ufsa og ýsu í bland. Það tók fyrir alla þorskveiði þar um leið og síldin hvarf af miðunum. Hér á Vestfjarðamiðum höfum við ekki orðið varir við loðnu utan hvað loðna var í einhverjum fiski í síðasta túr. Magnið var þó ekki mikið,“ segir Eiríkur Jónsson en hann segir það ekki vera spurningu um hvort, heldur hvenær þorskurinn muni skila sér af krafti inn í veiðina.