Íþróttamaður Akraness 2019 er Jakob Svavar


Jakob Svavar Sigurðsson var í kvöld kjörinn Íþróttamaður Akraness 2019. Þetta er í annað sinn sem hestaíþróttamaðurinn er efstur í þessu kjöri en hann fékk titilinn í fyrsta sinn árið 2013.

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, varð í öðru sæti.

Kraftlyftingamaðurinn Alexander Örn Kárason varð þriðji.

Kjörinu var lýst í Íþróttahúsinu við Jaðarsbakka í kvöld en það er Íþróttabandalag Akraness sem stendur að kjörinu.

Hallbera Jóhannsdóttir var kynnir á hátíðinni þar sem að íþróttafólk á öllum aldri fékk viðurkenningar fyrir árangur sinn á árinu 2019.

María Mist Guðmundsdóttir, afhenti Friðþjófsbikarinn fyrir hönd fjölskyldunnar sem gaf bikarinn á sínum tíma.

Hér fyrir neðan má lesa allt um afrek Jakobs á árinu 2019.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/12/23/jakob-svavar-sigurdsson-hestaithrottamadur-arsins-2019/

Hægt er að horfa á útsendinguna frá kjörinu hér fyrir neðan á hjá ÍATV.

Fyrst var kosið um Íþróttamann Akraness árið 1965 en frá árinu 1977 hefur kjörið farið fram á hverju ári. Kjörið í kvöld verður því það 45. frá upphafi.

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hefur oftast fengið þessa viðurkenningu eða sjö sinnum alls.

Sundkonurnar Ragnheiður Runólfsdóttir og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir hafa báðar verið sex sinnum alls efstar í kjörinu á Íþróttamanni Akraness.

Alls hafa konur verið kjörnar 22 sinnum en karlar í 22 skipti.

Sundíþróttin er með 21 titlil á þessu sviði en golfíþróttin er með 11 titla og í þriðja sæti eru fulltrúar úr knattspyrnunni með 10 titla.

Íþróttamenn Akraness frá upphafi:

2019: Jakob Svavar Sigurðsson, (2) hestamennska (2).
2018: Valdís Þóra Jónsdóttir (7) golf (11).
2017: Valdís Þóra Jónsdóttir, (6) golf (10).
2016: Valdís Þóra Jónsdóttir, (5) golf (9).
2015: Ágúst Júlíusson, (2) sund (21)
2014: Ágúst Júlíusson, (1) sund (20).
2013: Jakob Svavar Sigurðsson, (1) hestamennska (1).
2012: Inga Elín Cryer, (2) sund (19).
2011: Inga Elín Cryer, (1) sund (18).
2010: Valdís Þóra Jónsdóttir, (4) golf (8).
2009: Valdís Þóra Jónsdóttir, (3)golf (7).
2008: Valdís Þóra Jónsdóttir, (2) golf (6).
2007: Valdís Þóra Jónsdóttir, (1) golf (5).
2006: Eydís Líndal Finnbogadóttir, (1) karate.
2005: Pálmi Haraldsson, (1) knattspyrna (10).
2004: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (6) sund (17).
2003: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (5) sund (16).
2002: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (4) sund (15).
2001: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (3) sund (14).
2000: Birgir Leifur Hafþórsson, (3) golf (4).
1999: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (2) sund (13).
1998: Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, (1) sund (12).
1997: Þórður Emil Ólafsson, (1) golf (3).
1996: Birgir Leifur Hafþórsson, (2) golf (2).
1995: Sigurður Jónsson, (2) knattspyrna (9).
1994: Sigursteinn Gíslason, (1) knattspyrna (8).
1993: Sigurður Jónsson, (1) knattspyrna (7).
1992: Birgir Leifur Hafþórsson, (1) golf (1).
1991: Ragnheiður Runólfsdóttir, (6) sund (11),
*(Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1990: Ragnheiður Runólfsdóttir, (5) sund (10).
1989: Ragnheiður Runólfsdóttir, (4) sund (9).
1988: Ragnheiður Runólfsdóttir, (3) sund (8).
1987: Ólafur Þórðarson, (1) knattspyrna (6).
1986: Ragnheiður Runólfsdóttir, (2) sund (7).
1985: Ragnheiður Runólfsdóttir, (1) sund (6).
1984: Bjarni Sigurðsson, (1) knattspyrna (5).
1983: Sigurður Lárusson, (1) knattspyrna (4).
1982: Ingi Þór Jónsson, (2) sund (5).
1981: Ingólfur Gissurarson, (2) sund (4).
1980: Ingi Þór Jónsson, (1) sund (3).
1979: Ingólfur Gissurarson, (1) sund (2).
1978: Karl Þórðarson, (1) knattspyrna (3).
1977: Jóhannes Guðjónsson, (1) badminton (1) / knattspyrna (2).
1972: Guðjón Guðmundsson, (1) sund (1), (Íþróttamaður ársins á Íslandi).
1965: Ríkharður Jónsson, (1) knattspyrna (1).