Ungmennaráð Vesturlands stofnað – Guðjón Snær varaformaður


Guðjón Snær Magnússon frá Ungmennaráði Akraneskaupstaðar er varaformaður í nýstofnuðu Ungmennaráði Vesturlands. Stofnfundurinn fór fram í lok janúar þar sem að fulltrúar frá fimm ungmennaráðum komu saman.

Gubjörg Halldórsdóttir frá Ungmennaráði Stykkishólmsbæjar er formaður Ungmennaráðs Vesturlands, Guðjón Snær varaformaður og Stefanía Bláfeld Viðarsdóttir hjá Ungmennaráði Snæfellsbæjar er ritari.

Ungmennaráð Vesturlands. Frá vinstri Guðjón Snær Magnússon f.h. Akraneskaupstaðar, Guðbjörg Halldórsdóttir f.h. Stykkishólmsbæjar, Stefanía Bláfeld Viðarsdóttir f.h. Snæfellsbæjar, Tanja Lilja Jónsdóttir f.h. Grundarfjarðarbæjar og Bjartur Daði Einarsson f.h. Borgarbyggðar.

Frá þessu er greint á vef Hvalfjarðarsveitar.

Samkvæmt æskulýðslögum nr. 70/2007 skulu sveitarfélög á landinu hafa starfrækt ungmennaráð.

Í Velferðarstefnu Vesturlands kemur jafnframt fram að stofnað skuli vera Ungmennaráð Vesturlands (hér eftir UV). Ráðið er skipað einum fulltrúa frá þeim sveitarfélögum sem hafa skipað ungmennaráð eða fulltrúa ungmenna.

Með ráðinu starfa tveir fulltrúar æskulýðs- og tómstundarfulltrúa á Vesturlandi. Þá situr verkefnastjóri velferðarmála hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi í ráðinu en stofnun UV er á ábyrgð SSV.

Í tilefni af stofnfundinum hittust æskulýðs- og tómsstundarfulltrúar á Vesturlandi og ræddu ýmis mál, æskulýðsstarfið og forvarnir svo eitthvað sé nefnt. Voru allir sammála um að mörg tækifæri liggja í samstarfi innan málaflokksins á Vesturlandi og leitast var við að hafa fundi fulltrúanna með reglulegu millibili.

Auk þeirra sitja Ívar Orri Kristjánsson æskulýðs og tómstundarfulltrúi á Akranesi, Magnús Bæringsson æskulýðs- og tómstundarfulltrúi Stykkishólmsbæjar og Sigursteinn Sigurðsson verkefnastjóri hjá SSV sem starfsmenn ráðsins.