Fjölskyldum boðið að fresta fermingum fram á haustið vegna Covid-19 ástandsins




Séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli hefur ákveðið að bjóða upp á valkosti varðandi tímasetningar á fermingum á þessu ári.

Í bréfi sem Þráin sendi á foreldra fermingarbarna í dag kemur fram að fjölskyldur geti frestað athöfninni þar til í september. Er þetta gert vegna þeirrar óvissu sem hefur skapast vegna Covid-19 veirunnar, eða kórónuveirunnar.

Skessuhorn greindi fyrst frá.

Fjölskyldum stendur enn til boða að halda sínu striki varðandi fermingar að því gefnu að ekki komi til samkomubanns. Fyrstu fermingarnar eru á dagskrá 22. mars.

Hér er brot úr bréfi Þráins.

„Eins og við vitum hefur samkomubann ekki verið sett á. Engu að síður hefur mörgum viðburðum verið frestað eða þeim aflýst. Það hefur ekki farið fram hjá okkur að mikil óvissa ríkir meðal foreldra um næstu skref. Margir gestir hafa afboðað sig í fermingarveislur og eins og staðan er í dag er viðbúið að færri muni mæta til athafna. Það er hætt við að í skugga þeirra aðstæðna sem nú ríkja verði fermingardagurinn ekki sá gleðiviðburður sem hann ætti að vera,“ skrifar séra Þráinn og bætir við: „Með tilliti til þess og hagsmuni margra fjölskyldna höfum við ákveðið að ferma í september.

Fermt verður eftirtalda daga:

Ferming 22. mars: Fermt verður 6. september
Ferming 29. mars: Fermt verður 13. september
Ferming 5. apríl: Fermt verður 20. september
Ferming 19. apríl. Fermt verður 27. september

„Eflaust eru einhverjir sem ekki hafa þann kost að fresta fermingum og er það skiljanlegt. Meðan ekki hefur verið sett á samkomubann munum við messa kl. 11 alla fyrirhugaða fermingardaga í mars og apríl og geta þeir sem það kjósa valið fermingu þá daga. Ég bið þá foreldra sem eiga fermingarbörn í Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju að hafa samband við mig ef þau kjósa að finna nýjan fermingardag.“

„Eins og gefur að skilja er þetta ekki léttvæg ákvörðun, ekki hefur verið gefið út samkomubann og sóttvarnarástæður kveða ekki á um slíkt enn sem komi er. Þetta er okkar lausn á þessum vanda og vona ég að sem flestir geti nýtt sér þessar fermingar í september en að öðru leyti er opið fyrir fermingar í mars og apríl, svo lengi sem ekki verið sett á samkomubann.“