Elkem kom með glaðning til styrktar góðs málefnis og til stuðnings starfsfólks á HVE


Starfsfólk HVE á Akranesi og styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fengu góðan glaðning frá Elkem á Grundartanga s.l. föstudag.

Elkem tók ákvörðun um að kaupa 200 páskaegg af styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna og í stað þess að starfsmenn Elkem fengju eggin var ákveðið að starfsmenn HVE á Akranesi fengju að njóta þeirra.

Með þessu vill Elkem að sýna starfsmönnum HVE sem standa vaktina í Covid-19 faraldrinum stuðning

Á myndinni má sjá Valdísi Kvaran formann starfsmannafélagsins og Jóhannes Bergsveinsson yfirlækni standa við vagninn með páskaeggjunum.