Ekkert nýtt Covid-19 smit á Vesturlandi fimmta daginn í röð


Ekkert nýtt Covid-19 smit var greint í gær á Vesturlandi samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi birti rétt í þessu.

Þetta er fimmti dagurinn í röð þar sem ekkert smit greinist á Vesturlandi.

Alls hafa 39 smit verið greind á Vesturlandi og hefur ekkert nýtt smit verið greint frá því á Skírdag eða fimmtudaginn 9. apríl.

Á Akranesi hafa 11 Covid-19 smit verið greind, og eru 19 í sóttkví þessa stunda – líkt og í gær.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að þrátt fyrir betra ástand á þessu sviði séu enn í gildi reglur um samkomubann. Tilkynningin er hér fyrir neðan.


Þó svo virðist að dregið hafi úr Covid smitum og umræða sé hafin um það hvernig verði slakað á höftum sem sett hafa verið er staðan alls ekki sú að á nokkurn hátt hafi verið dregið úr þeim ráðstöfunum sem hafa verið í gildi.
Reglur um samkomubann eru í fullu gildi sem og allar almennar varúrarráðstafanir.
Baráttunni við Covid er ekki lokið og mikilvægt að allir geri það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir smit.
Kveðja, Lögreglan á Vesturlandi

Hér fyrir neðan má sjá þróunina á Vesturlandi undanfarna daga.