Gengur vel hjá áhöfninni á Bjarna Ólafssyni AK 70 – veiða kolmunna suður af Færeyjum


Kolmunnaveiði á gráa svæðinu suður af Færeyjum er hafin af góðum krafti og þar á meðal er Bjarni Ólafsson AK 70. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Gísla Runólfsson skipstjóra á þeim „gula“ eins og margir Skagamann kalla Bjarna Ólafsson.

Við köstuðum klukkan 10 í gærkvöldi austarlega á gráa svæðinu, drógum í 10 tíma og aflinn var 550 tonn. Það má því alveg segja að þetta byrji vel. Við köstuðum strax aftur, erum búnir að toga í tvo tíma og þetta hol lítur líka afar vel út. Hér um borð eru allir glaðir enda búið að bíða eftir því að veiðar hæfust.

Við fórum frá Neskaupstað fyrir 10 dögum og höfum síðan beðið eftir að fiskurinn gengi úr skosku lögsögunni og inn á gráa svæðið. Annars er veiðin að hefjast um líkt leyti og í fyrra. Mér sýnist að veiðin hafi byrjað 14. apríl í fyrra þannig að það munar ekki miklu.

Við lítum bara á biðina eftir kolmunnanum sem góða sóttkví. Það hafa fleiri skip verið að fá mjög góð hol. Polar Amaroq hífði 620 tonn áðan og ég held að Víkingur hafi verið með 580 tonn. Beitir NK hífði í nótt tæplega 200 tonn eftir að hafa dregið stutt og Margrét EA var líka kominn með afla. Mér líst afar vel á þetta. Útlitið er býsna bjart og ég held að þetta verði bara vaxandi“,segir Gísli.