Ekkert nýtt Covid-19 smit greindist á Vesturlandi í gær


Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta nýjustu upplýsingar um stöðuna á Covid-19 faraldrinum.

Staðan er óbreytt frá því í gær en 40 Covid-19 smit hafa verið greind á Vesturlandi.

Aðeins þrú ný smit hafa verið greind frá því á sunnudeginum 5. apríl.

Á Akranesi hafa því 12 Covid-19 smit verið greind og eru 12 í sóttkví á Akranesi og 33 á Vesturlandi öllu. Einstaklingum í sóttkví hefur fækkað umtalsvert á undanfarinni viku.

Eins og sjá má á töflunum hér fyrir neðan hefur ásatandið lagast mikið á Vesturlandi á rúmri viku.


Hér fyrir neðan má sjá þróunina á Vesturlandi undanfarna daga.