Flottur árangur hjá ÍA á Íslandsmótinu í 50 metra laug





Íslandsmeistaramót í 50 metra laug fór fram um síðustu helgi í Laugardalslaug, Reykjavík.  Alls tóku 146 keppendur þátt og komu þeir frá 14 félögum en keppendur þurfa að ná ákveðnum lágmörkum til að fá keppnisrétt á mótinu.

ÍA var með alls 14 keppendur sem er mesti fjöldi frá Sundfélagi Akraness á þessu móti á undanförnum 10 árum.

Keppendur ÍA náðu góðum árangri, alls 5 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun. Persónulegar bætingar voru alls 41 hjá sundfólkinu úr ÍA og alls komust keppendur frá ÍA í topp 8 í 26 greinum.

Boðsund, 4×200 metra skriðsund. Bronsverðlaun hjá ÍA.

Sindri Andreas Bjarnason, Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Atli Vikar Ingimundarsson og Kristján Magnússon náðu bronsverðlaunum eftir harða keppni við ÍRB en ÍA var aðeins 0,28 sek. á undan ÍRB.

Boðsund, 4×100 metrar skriðsund. Bronsverðlaun hjá ÍA.

Í 4×100 skriðsundi náði kvennasveit ÍA þriðja sætinu. Sveitina skipuðu þær Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir, Brynhildur Traustadóttir, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir og Ingibjörg Svava Magnúsardóttir



Í 4 x 50 m. skriðsundi í boðsundi blandaðra sveita settu þau Sindri Andreas Bjarnason, Atli Vikar Ingimundarsson, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir og Brynhildur Traustadóttir nýtt Akranesmet á tímanum 1.46.97 og urðu í 4. sæti. Gamla metið áttu þau Brynhildur, Ágúst, Ásgerður og Sævar Berg frá árinu 2017 á tímanum 1.48.21.


Guðbjarni Sigþórsson setti Akranesmet í 100 m skriðsundi í flokki 13-14 ára á tímanum 1.00.15, gamla metið var 1.00.97 og það átti Örn Viljar Kjartansson frá árinu 2005.

Brynhildur Traustadóttir vann 3 silfur í 200m , 400m og 1500m skriðsundi, og náði brons í 800m skriðsundi. 
Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir fékk sín fyrstu verlaun á Íslandmeistramóti með silfri í 50m flugsundi og 50m bringusundi.
Enrique Snær Llorens Siguðrsson heldur áfram að bæta sig og vann brons i 400m skriðsundi, 200m og 400m fjórsundi.
Sindri Andreas Bjarnason vann sín fyrstu einstaklingsverðlaun á Íslandsmeistramóti, brons í 200m skriðsundi.     

Það var mjög gaman að fylgjast með krökkunum sem voru að taka þátt í sínu fysta íslandsmeistaramóti.
Þau sýndu miklar framfarir og hlakkar okkur til að fylgjast með þeim áfram. Þeir sem tóku þátt i fyrsta skipti eru þau: Aldís Thea Danielsdóttir Glad, Karen Karadóttir, Guðbjarni Sigþórsson, Einar Margeir Ágústsson og Alex Benjamín Bjarnason.

Úrslit helgarinnar hjá Sundfélagi Akranes urðu þessi:

2. sæti
Brynhildur Traustadóttir 200, 400 og 1500m skriðsund
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 50m bringusund og 50m flugsund

3. sæti
Brynhildur Traustadóttir 800m skriðsund
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 400m skriðsund, 200 og 400m fjórsund
Sindri Andreas Bjarnason 200m skriðsund
4x200m skriðsund (Sindri Andreas Bjarnasson, Enrique Snær Llorens Sigurðsson, Atli Vikar Ingimundarsson og Kristján Magnússon)
4x100m skriðsund ( Guðbjörg Bjartey Guðmunsdóttir, Brynhildur Traustadóttir, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir og Ingibjörg Svava Magnúsardóttir)

4. sæti
Sindri Andreas Bjarnason 400 skriðsund
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 800 skriðsund
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 50 og 100 skriðsund
Ingibjörg Svava Magnúsardóttir 1500m skriðsund
4x200m skriðsund (Brynhildur Traustadóttir, Ingibjörg Svava Magnusardóttir, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir).

5. sæti
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 200 flugsund
Sævar Berg Sigurðsson 50m bringusund
Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir 50 og 100m bringusund
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir 50m bringusund
4×100 skriðsund (Sindri Andreas Bjarnason, Atli Vikar Ingimundarsson, Enrique Snær Llorens og Kristján Magnússon)
4×100 fjórsund (Enrique Snær Llorens, Sindri Andreas Bjarnasson, Atli Vikar Ingimundarsson, Kristján Magnússon)

6. sæti
Sindri Andreas Bjarnason 100 skriðsund og 100 baksund
Atli Vikar Ingimundarsson 50 og 100 flugsund

7.  sæti
Sindri Andreas Bjarnasson 50 skriðsund
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 100 bringusund
4×100 skriðsund (Sævar Berg Sigurðsson, Alex Benjamin Bjarnason, Einar Margeir Ágústsson og Guðbjarni Sigþórsson)

8. sæti
Enrique Snær Llorens Sigurðsson 200 skriðsund
Karen Karadóttir 50m bringusund
4×100 fjórsund (Einar Margeir Ágústsson, Sævar Berg Sigurðsson, Guðbjarni Sigþórsson, Alex Benjamin Bjarnason)

Boðsundssveit brons 4×200 skriðsundi: Kristján Magnússon, Sindri Andreas Bjarnasson, Atli Vikar Ingimundarsson, Enrique Snær Llorens Sigðurðsson.
Boðsundsveit brons 4×100 skriðsundi: Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir, Brynhildur Traustadóttir
Fremri röð frá vinstri: Aldís Thea Danielsdóttir Glad, Karen Karadóttir, Ingibjörg Svava Magnúsardóttir, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Kristján Magnússon, Guðbjarni Sigþórsson, Einar Margeir Ágústsson. Aftari röð frá vinstri: Sævar Berg Sigurðsson, Brynhildur Traustadóttir, Atli Vikar Ingimundarsson, Enrique Snær Llorens, Sindri Andreas Bjarnason, Alex Benjamín Bjarnason, Ragnheiður Karen Ólafsdóttir
Frá vinstri: Sindri Andreas Bjarnason, Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir, Enrique Snær Sigurðsson og Brynhildur Traustadóttir.