175 einstaklingar í sóttkví á Akranesi – líkamsræktin lokuð út þessa viku


Alls eru 175 einstaklingar á Akranesi í sóttkví eftir að Covid-19 smitaður einstaklingur fór í líkamsræktarsalinn á Jaðarsbökkum á þriðjudag í síðustu viku.

Þetta kemur fram í frétt á vef RÚV. S.l. föstudag kom annar smitaður iðkandi inn í líkamsræktina en aðstöðunni hefur nú verið lokað.

Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍA segir í viðtali við RÚV að vel hafi gengið að ná sambandi við þá aðila sem komu í líkamsræktina á þeim degi sem smitaði einstaklingurinn var í aðstöðunni.

Sundlaugin á Jaðarsbökkum er opin en þreksalir ÍA verða lokaðir út vikuna.