ÍA sendi Fjölni og Aftureldingu niður með góðum sigri gegn Fjölni



Kvennalið ÍA vann góðan 2-0 sigur í gær gegn Fjölni í Lengjudeildinni í knattspyrnu.

Unnur Ýr Haraldsdóttir og Jaclyn Ashley Poucel skoruðu mörk ÍA.

Með sigrinum varð ljóst að Fjölnir og Völsungur leika ekki í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

Liðin geta ekki náð ÍA að stigum en Skagakonur eru í þriðja neðsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.

Næstu leikir ÍA eru gegn toppliði Tindastóls og liði Aftureldingar.