„Ekki láta mig þurfa að sinna þér á gjörgæslu!“



Skagamaðurinn Sigurjón Örn Stefánsson, svæfingarlæknir á gjörgæslu LSH, sendi sterk skilaboð á fésbókarsíðu sinni í þessari viku. Sigurjón Örn leggur áherslu á að Covid-19 sé ekkert grín og biðlar til fólks að fylgja fyrirmælum.

Staðan á gjörgæslunni þessa dagana. Covid aftur.

Ég birti svona mynd af mér í vor til að minna fólk á að þetta væri ekkert grín og að fólk yrði að fylgja fyrirmælum.

Nú, nokkrum mánuðum og nokkrum dauðsföllum seinna birti ég nýja mynd en skilaboðin eru þau sömu.

Ég var aldrei órólegur yfir Covid í vor. Ég vissi að við værum eins vel undirbúin og hægt var til að taka við þeim sjúklingum sem kæmu og að þjóðin sem heild myndi ná að brjóta þennan kúf og takmarka fjöldann sem við þyrftum að sinna.

Nú í dag er ég hálf órólegur. Ekki vegna þess að við séum verr undirbúin því það erum við ekki. Ég er órólegur því mér finnst komin þreyta í fólk yfir þessu, mér finnst margir ekki lengur vera að taka mark á því sem þarf að gera og það er fáránlegt. Það er fáránlegt því núna í dag lifum við EKKI fordæmalausa tíma.

Við vitum alveg hvað þarf að gera til að minnka skaðann, það eru fordæmi fyrir því.Í dag greindust næstum hundrað manns.

Einföld tölfræði segir mér að einn eða tveir af þessum hundrað muni ég þurfa að sinna á gjörgæslu.

Ekki láta mig þurfa að sinna þér á gjörgæslu!