Er Jón Örn óstöðvandi í „tippinu“? – Nær Örn að binda endi á sigurgönguna?

Jón Örn Arnarson heldur áfram sínu striki í getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA. Jón Örn hafði betur gegn Bryndísi Guðjónsdóttur um liðna helgi eftir maraþonviðureign sem stóð yfir í þrjár vikur.

Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og er það leikur einn að taka þátt og styðja við bakið á KFÍA á sama tíma.

Jón Örn fékk 11 rétta um liðna helgi og í þessari viku mætir hann Erni Gunnarssyni.

Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.

Sigmundur Ámundasona hafði betur gegn Kristleifi Skarphéðni Brandssyni í fyrstu umferð.

Jón Örn Arnarson hafði síðan betur gegn Sigmundi í 2. umferð en Jón Örn náði 11 réttum af alls 13 í þeirri viðureign.

Jón Örn og Bryndís áttus við um liðna helgi og var það þriðja vikan í röð þar sem þau mættust. Fyrst fengu þau 7 rétta síðan 9 rétta og Jón Örn sigraði síðan að lokum með 11 réttum um liðna helgi.

Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.

Einar Brandsson er í forsvari fyrir getraunastarf KFÍA. Einar segir í samtali við Skagafréttir að vegna Covid-19 sé ekki hægt að hefja hið hefðbundna getraunastarf með venjulegum hætti.

„Það er mikil þörf að styðja við bakið á KFÍA með þessum hætti. Þeir sem vilja taka þáttt geta sent inn sínar raðir á [email protected] – það þarf að gerast fyrir kl. 10.00 á laugardagsmorgni.

Þessar raðir verða þá settar inn í kerfið hjá okkur. Þeir sem tippa í gegnum getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum.

Þeir sem tippa ráða svo hvort þeir setja miðann inn í kerfi 1×2.is til að eiga möguleika á vinning. Miði með 96 röðum kostar 1.440 kr,“ segir Einar Brandsson við skagafrettir.is.

Þess má geta að það eru 160 milljónir kr. í vinning fyrir 13 rétta um þessa helgi.

Jón Örn spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:

Örn spáir þannig fyrir leiki helgarinnar: