Rafrænn aðalfundur Leynis 2020 – félagsmenn eru beðnir um að skrá sig

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis fer fram fimmtudaginn 3. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá klúbbnum.

Fundurinn verður rafrænn að þessu sinni og óska forsvarsmenn klúbbsins eftir því að félagsmenn tilkynni um þátttöku sína á fundinum með því að senda tölvupóst á [email protected] 

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis verður haldinn fimmtudaginn 3. desember nk.

Í ljósi aðstæðna mun fundurinn vera rafrænn í gegnum fjarfundarbúnað.

Ef aðstæður hins vegar að breytast hvað varðar fjöldatakmarkanir þá mun stjórn endurskoða fyrirkomulagið.

Fundurinn hefst kl. 20:00 og er dagskrá fundarins sem hér segir:

  • Skýrsla stjórnar.
  • Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
  • Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
  • Lagðar fram tillögur um lagabreytingu. Umræður, tillögurnar bornar undir atkvæði.
  • Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun 2020-2021 ásamt tillögum um félagsgjöld.  Umræður, áætlunin og tillaga stjórnar bornar undir atkvæði.
  • Kosning stjórnar og varamanns í stjórn skv. 6. gr.
  • Kosning tveggja endurskoðenda skv. 6. gr. (og einn til vara)
  • Önnur mál.

Fyrir aðalfund liggja eftirfarandi breytingatillögur á lögum félagsins. Með því að smella á hlekkinn hér að neðan má sjá tillöguna.

Tillögur að lagabreytingum er að finna hér

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á því að sitja aðalfund GL eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á netfangið 
[email protected]  og skrá sig til þátttöku.

Á fundardegi verður sent rafrænt fundarboð til þeirra sem tilkynnt hafa þátttöku. Með þessum hætti getum við tryggt að sem flestir félagsmenn geti tekið þátt í aðalfundinum á þessum sérkennilegu tímum.

Stjórn GL