Starf fjármálastjóra Akraneskaupstaðar verður lagt niður

Eins og áður hefur komið fram eru umtalsverðar breytingar eru boðaðar á rekstri og innra vinnulagi hjá Akraneskaupstað. Á síðasta fundi bæjarráðs var nýtt skipurit lagt fram ásamt greinargerð og tillögum um stjórnkerfisbreytingar.

Bæjarstjórn Akraness fjallaði um málið á fundi sínum þann 1. desember s.l. tveimur fundum og verður fjallað um málið á ný þann 15. desember.

Bæjarráð samþykkti tillögurnar og breytingar á skipuriti en fulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði gegn þessum breytingum.

Á meðal þeirra breytinga sem boðaðar eru eru innan fjármáladeildar. Starf fjármálastjóra Akraneskaupstaðar verður lagt niður, en Þorgeir Hafsteinn Jónsson hefur verið í því starfi undanfarin fjögur ár.

Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt verkefnastjóra í fjármáladeild vera falið að taka við aukninni ábyrgð og verkefnum sem tengjast fjármálum Akraneskaupstaðar.

Ákveðin breyting verður gerð innan fjármáladeildar þar sem innkaupa- og greiningarfulltrúi verður ráðinn til þess að ná fram betri og markvissari innkaupum til þess að stýra betur stórum útgjaldaliðum í rekstri Akraneskaupstaðar.

Nánar hér – umbótavinna – skipurit Akraneskaupstaðar – bæjarráð.

Nánar hér greinargerð – tillögur vegna stjórnkerfisbreytinga 24.11.2020.

Bæjarráð samþykkti í lok febrúar á þessu ári tillögu þess efnis að fara í umbótavinnu á rekstri og innra vinnulagi kaupstaðarins. Markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni í starfsemi stjórnsýslu sveitarfélagsins með breytingum á stjórnun, verkferlum og samstarfi.

Áætlað er að nýtt skipurit taki gildi þann 1. janúar 2021.

http://localhost:8888/skagafrettir/2016/11/26/fjarmalastjori-baejarins-var-grjothardur-varnarmadur/

Helstu breytingarnar eru í stórum dráttum þessar:

  • Ný eining stofnuð undir heitinu Skrifstofa bæjarstjóra.
  • Þjónusta og stafræn þróun, tölvu- og kerfismál, verkefnastofa, atvinnuþróun, markaðsmál, ferðamál og menningar- og safnamál málaflokkar sem tilheyra nýrri skrifstofu.
  • Ný staða skrifstofustjóra sem Sædís Alexía Sigurmundsdóttir tekur við.
  • Ný staða verkefnastjóra yfir verkefnastofu sem Ella María Gunnarsdóttir tekur við. Ella María er í dag forstöðumaður menningar- og safnamála og verður það starf lagt niður.
  • Starf skjalastjóra / persónuverndarfulltrúa auglýst á nýju ári. Núverandi verkefnastjóra skjalamála hefur verið boðið nýtt starf sem felst í 50% í þjónustuveri og 50% til aðstoðar á skipulags- og umhverfissviði.
  • Rekstur Guðlaugar verður í umsjón skrifstofustjóra (Sædís Alexía).
  • Rekstrarumhverfi Akranesvita/upplýsingamiðstöðvar er breytt og Hilmari Sigvaldasyni boðið að vinna 20% stöðu í móttöku hópa og 80% stöðu í Guðlaugu og/eða innan íþróttamannvirkja.
  • Forstöðumanni íþróttamannvirkja, Ágústu Andrésdóttur, verður boðið að snúa aftur til starfa í 100% starf en hefur verið 30% starfi undanfarna fimm mánuði. Ásamt því verður gerð breyting innan íþróttamannvirkja til þess að styrkja starfsemina og verða vaktstjórar á vöktum.
  • Nýráðningar mannauðsstjóra og skipulagsfulltrúa hluti af heildarbreytingarferlinu.
  • Ákveðin breyting verður gerð á Héraðsskjalasafninu þar sem lagt verður niður 50% staða í hagræðingarskyni og hefur Erlu Dís Sigurjónsdóttur verið boðin 100% staða héraðsskjalavarðar til eins árs en til skoðunar er fyrirkomulag safnsins til framtíðar.
  • Ákveðin breyting verður gerð innan fjármáladeildar þar sem innkaupa- og greiningarfulltrúi verður ráðinn til þess að ná fram betri og markvissari innkaupum til þess að stýra betur stórum útgjaldaliðum í rekstri Akraneskaupstaðar. Starf fjármálastjóra sem Þorgeir Hafsteinn Jónsson gegnir í dag verður lagt niður og mun sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt verkefnastjóra í fjármáladeild vera falið að taka við aukninni ábyrgð og verkefnum.
  • Breytingar verðar gerðar innan velferðar- og mannréttindasviðs
  • Ráðinn verður verkefnastjóri tímabundið í innleiðingu barnvæns samfélags og snemmtæka íhlutun.
  • Ráðinn verður forstöðumaður yfir nýrri búsetueiningu á Beykiskógum.
  • Vegna aukins álags í barnavernd verður ráðinn inn starfsmaður tímabundið.
  • Heimild er gefin fyrir áframhaldandi stöðuhlutfalli í ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks í ½ ár

Nánar hér – umbótavinna – skipurit Akraneskaupstaðar – bæjarráð.

Nánar hér greinargerð – tillögur vegna stjórnkerfisbreytinga 24.11.2020.