Hallbera Guðný þakkar Jóni Þóri fyrir samstarfið – „Flottur þjálfari með mikla ástríðu“

Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, sendi þakkarkveðju á Jón Þór Hauksson fyrrum þjálfara liðsins í færslu á fésbókinni í dag.

Þar dregur hin þaulreynda landsliðskona frá Akranesi fram nokkur atriði sem hafa verið í umræðunni á undanförnum dögum eftir að Jón Þór sagði sig frá þjálfarastarfinu eftir atvik sem áttu sér stað eftir sigurleik Íslands gegn Ungverjalandi.

Sjá nánar hér:

Hallbera Guðný, sem lék með ÍA áður en hún fór til Vals á sínum tíma, segir að hún geti ekki setið undir þeim ásökunum að leikmenn liðsins hafi lagt á ráðin að hrekja þjálfara liðsins frá störfum.

Að lokum bendir Hallbera Guðný á þá staðreynd að það sem sitji eftir er að Ísland sé á leið á EM og að leikmenn ætli að leggja hart að sér í framtíðinni.

Færsla Hallberu Guðnýjar er hér fyrir neðan í heild sinni:

Mig langar að byrja á því að þakka Jóni Þóri fyrir samstarfið síðastliðin 2 ár. Mín skoðun er sú að hann er flottur þjálfari með mikla ástríðu fyrir leiknum og hef ég ekkert nema góða hluti um okkar tíma í landsliðinu að segja.

Það hryggir mig hinsvegar að sjá fólk taka undir og deila skoðunum sem snúa að því að um samantekin ráð okkar leikmanna hafi verið að ræða til þess að hrekja þjálfarann frá störfum. Ég get ekki setið undir slíkum ásökunum enda eru þær fjarri sannleikanum.

Eftir situr að landsliðið náði frábærum árangri og tryggði sér sæti á EM 2022. Við munum halda áfram að leggja hart að okkur svo liðið geti byggt ofan á þann árangur og þá góðu vinnu sem hefur verið unnin.

http://localhost:8888/skagafrettir/2020/12/08/jon-thor-mistok-sem-eg-tek-fulla-abyrgd-a-haettir-storfum-sem-thjalfari-a-landslids-kvenna/