Stórmeistarajafntefli niðurstaðan – „Össi Gunn“ og „Benni Valtýs“ eigast við á ný

Getraunaáskorun tippklúbbs Knattspyrnufélags ÍA rúllar nú inn í níundu viku tímabilsins.

Getraunakeppnin er með þeim hætti að keppendur fylla út 96 raðir í Enska boltanum. Sá sem fær fleiri rétta er sigurvegari og fær nýjan mótherja í næstu umferð. Ef jafnt er hjá keppendum þá halda þeir báðir áfram í næstu umferð.

Örn Gunnarsson og Benedikt Valtýsson áttust við í síðustu viku og skildu þeir jafnir. Þeir halda því áfram í þessari viku en þetta er fjórða vikan í röð þar sem að Örn tekur þátt í getraunaáskoruninni.

Benedikt Valtýsson, er fyrrum leikmaður Íslandsmeistaraliðs ÍA líkt og Örn. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa báðir leikið sem bakverðir með meistaraflokki ÍA – og á síðari árum hefur golfíþróttin verið ofarlega í þeirra huga.

Getraunastarf Knattspyrnufélags ÍA hefur í gegnum tíðina verið fastur punktur í tilverunni hjá fjölmörgum á Akranesi. Vegna aðstæðna í samfélaginu hefur tippklúbbur KFÍA lagt áherslu á að nýta tæknina í getraunastarfinu og er það leikur einn að taka þátt og styðja við bakið á KFÍA á sama tíma.

Úrslit úr fyrri umferðum:

1. Sigmundur Ámundason – Kristleifur Skarphéðinn Brandsson.
2. Sigmundur Ámundason – Jón Örn Arnarson.
3. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
4. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
5. Jón Örn Arnarson – Bryndís Guðjónsdóttir.
6. Jón Örn Arnarson – Örn Gunnarsson.
7. Örn Gunnarsson – Sigurður Páll Harðarson.
8. Örn Gunnarsson – Benedikt Valtýsson.


Í lok tímabilsins fer fram keppni á milli þeirra tippsérfræðingar sem sigrað hafa í flestum viðureignum eða náð bestum árangri. Nánari útfærsla á úrslitakeppninni verður birt síðar.

Einar Brandsson er í forsvari fyrir getraunastarf KFÍA. Einar segir í samtali við Skagafréttir að vegna Covid-19 sé ekki hægt að hefja hið hefðbundna getraunastarf með venjulegum hætti.

„Það er mikil þörf að styðja við bakið á KFÍA með þessum hætti. Þeir sem vilja taka þáttt geta sent inn sínar raðir á [email protected] – það þarf að gerast fyrir kl. 10.00 á laugardagsmorgni.

Þessar raðir verða þá settar inn í kerfið hjá okkur. Þeir sem tippa í gegnum getraunakerfi KFÍA styrkja okkar félag aukalega þar sem hærra hlutfall af hverri röð rennur beint til KFÍA heldur en ef tippað er á 1×2.is eða á sölustöðum.

Þeir sem tippa ráða svo hvort þeir setja miðann inn í kerfi 1×2.is til að eiga möguleika á vinning. Miði með 96 röðum kostar 1.440 kr,“ segir Einar Brandsson við skagafrettir.is.

Þess má geta að það eru 90 milljónir kr. í vinning fyrir 13 rétta um þessa helgi.

Örn spáir þannig fyrir leiki helgarinnar:

Benedikt spáir þannig fyrir leiki helgarinnar: