Nýjustu Covid-19 tölurnar – mánudaginn 14. desember

Alls greindust fjórir einstaklingar með Covid-19 smit í gær og voru þeir allir sóttkví.

Þetta er annar dagurinn í röð þar sem allir sem greinast með Covid-19 eru í sóttkví.

Nýgengi innanlandssmita fer lækkandi en það er nú 35,5 en var 37,4 í gær.

Á Vesturlandi er staðan sú sama og undanfarna daga.

Þrír einstaklingar eru í sóttkví og fimm eru í einangrun vegna Covid-19 smits.

Á Akranesi eru 3 í einangrun vegna Covid-19 og 1 er í sóttkví.