Hulda og Sigurður Már fengu fyrstu skammtana af Covid-19 bóluefninu á Akranesi

Í morgun hófst bólusetning vegna Covid-19 hjá starfsfólki í framlínu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Sigurður Már Sigmarsson, sjúkraflutningamaður og Hulda Gestsdóttir, hjúkrunarfræðingur, voru þau fyrstu sem fengu bólusetningu á HVE á Vesturlandi.

Í dag fær starfsfólk HVE sem sinnir sýnatökum á Akranesi bóluefni vegna Covid-19.

Jóhannes Bergsveinsson, læknir, og Ragnheiður Björnsdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur, sáu um fyrstu bólusetningarnar vegna Covid-19 á Akranesi – en þau sinna bæði sýnatökum á heilsugæslu HVE á Akranesi.

Á morgun, 30. desember, fá starfsmenn sem sinna sýnatökum á öðrum starfsstöðvum HVE bóluefni gegn Covid-19.

Á sama tíma verður byrjað að bólusetja heimilisfólk á Dvalarheimilinu Höfða líkt og á öðrum dvalarheimilum á Vesturlandi á starfssvæði HVE.

Hulda Gestsdóttir og Sigurður Már Sigmarsson. Mynd/HVE