Fimm fyrrum leikmenn ÍA valdir í lokahóp U-21 árs landsliðs Íslands fyrir EM

Fimm leikmenn sem hafa komið við sögu hjá ÍA á sínum ferli eru í lokahóp U-21 árs landsliðs Íslands fyrir EM 2021 í knattspyrnu karla. Úrslitakeppni EM fer fram í lok mars og er þetta í annað sinn sem Ísland tekur þátt í úrslitum EM í þessum aldursflokki.

Davíð Snorri Jónasson er landsliðsþjálfari U21 karla.

Leikmennirnir fimm sem um ræðir eru Stefán Teitur Þórðarson, Ísak Bergmann Jóhannesson, Bjarki Steinn Bjarkason, Hörður Ingi Gunnarsson og Valdimar Þór Ingimundarson. Þeir fjórir fyrstnefndu eiga allir leik með meistaraflokki ÍA en Valdimar Þór lék með yngri flokkum ÍA áður en hann fór í Fylki í Árbænum.

Mótið er tvískipt, en riðlakeppnin fer fram núna í mars og 8-liða úrslit, undanúrslit og úrslit í sumar. Ísland er í riðli með Rússlandi, Danmörku og Frakklandi og leikur alla leiki sína í Györ í Ungverjalandi. Leikirnir þrír verða í beinni útsendingu á RÚV.

Ísland hefur leik gegn Rússlandi 25. mars, mæta Dönum 28. mars og enda svo riðlakeppnina á leik gegn Frökkum 31. mars.

Riðillinn:

Hópurinn

Patrik Sigurður Gunnarsson | Silkeborg IF | 10 leikir
Elías Rafn Ólafsson | FC Fredericia | 4 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson | Grótta
Finnur Tómas Pálmason | IFK Norrköping | 3 leikir
Valgeir Lunddal Friðriksson | Häcken | 1 leikur
Róbert Orri Þorkelsson | Breiðablik | 3 leikir
Ísak Óli Ólafsson | Sönderjyske | 8 leikir, 2 mörk
Ari Leifsson | Stromsgodset | 17 leikir, 1 mark
Hörður Ingi Gunnarsson | FH | 15 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson | IFK Norrköping | 4 leikir
Andri Fannar Baldursson | Bologna | 3 leikir
Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 13 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 21 leikur, 5 mörk
Alex Þór Hauksson | Öster | 18 leikir, 1 mark
Willum Þór Willumsson | BATE | 17 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Birgir Finnsson | Dortmund | 15 leikir
Þórir Jóhann Helgason | FH | 6 leikir
Kolbeinn Þórðarson | Lommel | 6 leikir
Stefán Teitur Þórðarson | Silkeborg IF | 14 leikir, 1 mark
Brynjólfur Andersen Willumsson | Kristiansund BK | 12 leikir, 1 mark
Valdimar Þór Ingimundarson | Stromsgodset | 8 leikir, 1 mark
Sveinn Aron Guðjohnsen | OB | 15 leikir, 6 mörk
Bjarki Steinn Bjarkason | Venezia | 2 leikir