Þekkir þú sóttvarnarreglurnar sem tóku gildi þann 18. mars?

Ýmsar breytingar voru gerðar í nýrri reglugerð frá heilbrigðisráðherrra varðandi sóttvarnarráðstafanir sem tók gildi þann 18. mars eða í gær.

Skerpt er á skráningu gesta á viðburði, veitingar eru ekki leyfðar í hléi og gæta þarf betur að sóttvörnum við hlaðborð.

Reglugerðin gildir til 9. apríl eða fram yfir páska.

Eftirfarandi breytingar taka gildi 18. mars:

Allir gestir skráðir:

Á öllum viðburðum, svo sem í athöfnum trú- og lífsskoðunarfélaga, sviðlistar-, menningar og íþróttaviðburðum, ráðstefnum, fyrirlestrum og sambærilegum viðburðum, skulu gestir skráðir í númeruð sæti og teknar niður upplýsingar um nafn, kennitölu og símanúmer hvers og eins.

Engar veitingar í hléi:

Óheimilt er að selja eða bjóða veitingar í hléi á viðburðum og skulu gestir beðnir um að halda kyrru fyrir í sætum sínum.

Engin blöndun milli sóttvarnahólfa:

Skipuleggjendur viðburða skulu tryggja að ekki séu fleiri en 50 manns í hverju sóttvarnahólfi og að ekki verði blöndun gesta á milli hólfa.

Hlaðborð:

Áfram verður heimilt að bjóða upp á hlaðborð en gestum gert skylt að sótthreinsa hendur áður en þeir sækja sér mat á hlaðborðið og einnig að því loknu, auk þess gæta að 2 metra nálægðarmörkum.

Að öðru leyti eru reglurnar óbreyttar frá því sem verið hefur. Fjöldamörk samkomubanns verður áfram fimmtíu manns, tveggja metra reglan er áfram í gildi og grímuskylda er óbreytt. Afgreiðslutími skemmti- og veitingastaða verður enn fremur sá sami og áður.