Fjórir klifrarar úr fjölmennum keppnishóp frá ÍA á verðlaunapalli

Íslandsmeistaramótaröðin í klifuríþróttinni fór af stað í dag í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppendur úr ÍA náðu góðum árangri á þessu móti sem er það fyrsta af alls fjórum á Íslandsmeistaramótaröðinni. Á undanförnum misserum hefur iðkendum í klifuríþróttinni á Akranesi fjölgað mikið og var keppnishópur ÍA á þessu móti í B-C flokki sá fjölmennasti frá upphafi.

Leiðasmiðir lögðu upp með fjölbreyttar leiðir, sem einkenndust af erfiðum samhæfingar hreyfingum og jafnvægi. Leiðirnar voru allar í erfiðari kantinum og máttu klifrarar hafa sig alla við, lítið mátti út af bregða og því voru taugar og vöðvar þandir til hins ítrasta.

Í C-flokki stúlkna hreinsuðu ÍA stúlkur borðið og röðuðu sér í þrjú efstu sætin. Þórkatla Þyrí sigraði með sex toppa og sjö bónusa, Ester Guðrún hafnaði í öðru með fimm toppa og sex bónusa, og Beníta Líf stal því þriðja með þrjá toppa og fimm bónusa.

Í B-flokki stúlkna hafnaði Sylvía Þórðardóttir í öðru sæti á eftir Ásthildi Elfu en báðar hlutu þær fjóra toppa og sex bónusa en Sylvía þurfti þremur tilraunum fleiri til að ná bónus, ellefu tilraunir á mót átta frá Ásthildi. Í þriðja sæti hafnaði Hekla Petronella með fjóra toppa og fimm bónusa.

Skagastrákarnir náðu sér ekki almennilega á flug á þessu fyrsta móti ársins en bestu árangri þeirra náði Rúnar Sigurðsson en hann tók sjötta sæti í B-flokki drengja.