Opinn dagur í Tónlistarskólanum – líf og fjör á laugardaginn

Í tilefni af Vökudögum hefur Tónlistarskólinn á Akranesi helgað líðandi viku samspili nemenda af öllu tagi.

Nemendur hafa myndað stærri og smærri hljómsveitir og samspilshópa og verður árangurinn af starfi vikunnar fluttur fyrir gesti Tónlistarskólans á laugardaginn kemur, 4. nóvember. Það verður stöðugur tónlistarflutningur víða um skólann allt frá klukkan 12 á hádegi og fram til kl. 5.
Meðal annars leikur 50 manna hljómsveit í Tónbergi klukkan 13.00, 15.00 og 16.30.

Tilgangurinn með þessari viku er að gefa nemendum tækifæri til að reyna fleira en þeir fá alla jafna í náminu og opna þannig á milli ólíkra þátta starfsins í Tónlistarskólanum.

Allir eru velkomnir og verður kaffisala í skólanum. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá æfingum nemenda.