7,7 milljónum kr. úthlutað í styrki til íþrótta – og menningarmála

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2018 tillögur skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar um styrkveitingar til íþrótta- og menningarmála að andvirði 7,7 m.kr.  Frá þessu er greint á vef Akraneskaupstaðar.

Um er að ræða úthlutun styrkja úr sjóði atvinnu-, íþrótta- og menningarmála en auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember með umsóknarfrest til 17. desember síðastliðinn.

Að þessu sinni voru einungis veittir styrkir til verkefna á sviði íþrótta og menningar og var afgreiðslu atvinnutengdra umsókna frestað fram að vori vegna stefnumótunar í atvinnumálum hjá Akraneskaupstað.

Jafnframt ákvað bæjarráð að skilyrða greiður til íþróttafélaga í þá veru að styrkþegar sem bjóða upp á tómstundaiðkun fyrir börn og unglinga hafi til staðar siðareglur, viðbragðsáætlanir og fræðslu um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi fyrir iðkendur og starfsmenn innan félagsins.

Áhersla er á að fræðsla nái til starfsmanna og þjálfara. Öll íþróttafélög sem fengu úthlutað styrk þurfa að skila bæjaryfirvöldum yfirlýsingu frá stjórn félagsins um að framangreint verði uppfyllt fyrir 15. maí 2018.

Samhliða úthlutun úr sjóðnum var samþykkt að gera breytingar á áðurnefndum sjóði og skipta honum upp þannig að það verði sérstakur sjóður fyrir annars vegar íþróttatengd verkefni og hins vegar menningartengd verkefni. Bæjarráð var sammála um að þær breytingar feli í sér meiri skilvirkni og gagnsæi þegar kemur að úthlutun og forgangsröðun verkefna.

Styrkveitingar til atvinnutengdra verkefna verða mótaðar samhliða áðurnefndri stefnumörkun í atvinnumálum en horft er til að þær verði teknar fyrir jafn óðum og þær berast, þar sem oftast nær er umfang þessara umsókna öðruvísi en til að mynda á sviði íþrótta og menningar. Næstu skref eru að forma reglur fyrir þessa sjóði og mun það vera í höndum skóla- og frístundaráðs og menningar- og safnanefndar að leggja tillögur um slíkar reglur fyrir bæjarráð í vor.

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað styrkjum í ár:

Badmintonfélag Akranes – rekstarstyrkur kr. 200.000

Blakfélagið Bresi – rekstarstyrkur kr. 75.000

Brynjar Már Ellertsson – ferðastyrkur kr. 150.000

Fimleikafélag Akraness – rekstarstyrkur kr. 200.000

Golfklúbburinn Leynir – tækjabúnaður kr. 200.000

Íþróttabandalag Akraness – tækjabúnaður kr. 200.000

Íþróttabandalag Akraness – markþjálfi kr. 200.000

Íþróttafélagið Þjótur – rekstrarstyrkur kr. 300.000

Jóhann Ársæll Atlason – ferðastyrkur kr. 150.000

Karatefélag Akraness – æfingarbúðir erlendis kr. 150.000

Keilufélag Akraness – tækjabúnaður kr. 275.000

Knattspyrnufélag ÍA – fyrirlestraröð kr. 300.000

Knattspyrnufélagið Kári – boltakaup kr. 150.000

Körfuknattleiksfélag ÍA – boltakaup kr. 150.000

Sigurfari – siglingafélag Akraness – siglingarnámskeið kr. 200.000

Sjóbaðsfélag Akraness – viðburður á Írskum dögum kr. 100.000

Sundfélag Akraness – rekstarstyrkur kr. 50.000

Valdís Þóra Jónsdóttir – ferðastyrkur kr. 300.000

Vélhjólaíþróttafélag Akraness – framkvæmdastyrkur kr. 150.000

Dularfulla búðin – vísindaskáldsögusafn kr. 350.000

Grundaskóli – söngleikur kr. 500.000

Hallbera Fríður Jóhannesdóttir – endurprentun Á ferð og flugi með ömmu kr. 50.000

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir og Birgir Þórisson – klassískir tónleikar á Vökudögum kr. 400.000

Ingibjörg Halldórsdóttir – heimildamyndahátíð kr. 300.000

Ingimar Oddsson – Steampunk Iceland hátíð kr. 150.000

Kór Akraneskirkju – tónleikar í Bíóhöllinni kr. 250.000

Kvennakórinn Ymur – tónleikahald kr. 100.000

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn – námskeið kr. 150.000

Leikfélagið Skagaleikflokkurinn – götuleiksýningar kr. 200.000

Leiklistarklúbbur NFFA – söngleikur kr. 500.000

Lovísa Lára Halldórsdóttir – hrollvekjuhátíð á Akranesi kr. 250.000

Muninn kvikmyndagerð ehf. – örmyndir um atvinnusögu Akraness kr. 500.000

Norræna félagið á Akranesi – rekstarstyrkur kr. 100.000

FEBAN félag eldri borgara – rekstarstyrkur kr. 300.000

Hljómur kór eldri borgara – rekstarstyrkur kr. 100.000