Skagamennirnir Svavar Örn Sigurðsson og Einar Örn Guðnason náðu góðum árangri í klassískum kraftlyftingum og klassískri bekkpressu.
Einar Örn og Svavar Örn.
Svavar gerði sér lítið og sigraði í 74 kg. flokki í klassískri bekkpressu. Hann bætti sig jafnt og þétt í þremur tilraunum. Fyrsta lyfti hann 135 kg., 145 kg. í annarri tilraun og150 kg. í þriðju tilrauninni.
Einar Örn keppti í 105 kg. flokknum og varð annar. Hann lyfti 180 kg. Sigurvegarinn Ingimundur Björgvinsson lyfti 201 kg. en Einar Örn reyndi við þá þyngd í lokaumferðinn en tókst ekki að lyfta þeirri þyngd.
Í klassískum kraftlyfingum var Einar Örn eini keppandinn frá ÍA – og hann gerði sér lítið fyrir og setti Íslandsmet í bekkpressu. Einar Örn lyfti 278,5 kg í hnébeygju, 270 kg í réttstöðulyftu og 186,5 kg í bekkpressu.
Kraftlyftingar eru ekki ólympísk grein en innan alþjóðasambandsins er annars vegar keppt í kraftlyftingum með búnaði (hnébeygjubrók og bekkpressusloppur) og hins vegar án búnaðar og kallast það klassískar kraftlyftingar.