Fjölskylduhátíðin Írskir dagar hefst í næstu viku og að venju eru dagskráin öflug og spennandi viðburðir í boði.
Þar á meðal eru tónleikarnir „Óður til Írlands“ og er þetta þriðja árið í röð sem slíkir tónleikar eru á dagskrá.

Þar koma fram Söngdætur Akraness, en þær eru Ylfa Flosadóttir, Valgerður Jónsdóttir, Rakel Pálsdóttir, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir, Hulda Gestsdóttir og Rósa Guðrún Sveinsdóttir.
Flosi Einarsson er líkt og áður í stóru hlutverki ásamt hljómsveit. Á tónleikunum eru flutt keltnesk og írsk tónlist, allt frá poppi og rokki til ættjarðarlaga.
Hljómsveitina skipa: Ragnar Skúlason, Hjördís Tinna Pálmadóttir og Hrefna Berg Pétursdóttir sem öll spila á fiðlu; Jakob Grétar Sigurðsson á trommur, Sigurþór Þorgilsson á bassa og Eðvarð Lárusson á gítar. Auk þeirra koma fram Hallgrímur Ólafsson (Halli Melló) og ungir dansarar af Akranesi sem tilheyra danshópnum X12.
Allir þessir listamenn eru frá Akranesi og segir í tilkynningu frá Söngdætrunum að það séu forréttindi að fá að starfa með svona mögnuðu listafólki.
„Skagamenn geta heldur betur verið stoltir af því að eiga svona öflugt listafólk sem leggja mikið á sig til að auðga menningarlíf á Akranesi. Gestir verða ekki sviknir af tónleikunum okkar á miðvikudaginn og okkur hlakkar mikið til að flytja Óð til Írlands fyrir okkar gesti, segja Söngdætur Akranes í samtali við Skagafréttir.
Miðasala á Óð til Írlands er á tix.is og í verslun Eymundsson á Akranesi (með reiðufé).






