Kristín Þórhallsdóttir, sem keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akraness, náði frábærum árangri á Íslandsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum – sem fram fór um s.l. helgi. 

Kristín keppti í +84 kg. opnum flokki kvenna – þar sem hún varð meistari og hún varð einnig stigahæsti keppandi mótsins. Þar með tryggði hún sér einnig Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki 2026. 

Fyrr á þessu ári varð hún Evrópumeistari í þessum þyngdaflokki í annað sinn á ferlinum. 

Hún setti fjölmörg Íslandsmet í opna flokknum og einnig í mastersflokki 1. 

Besti árangur hennar á þessu móti var eftirfarandi: 

Hnébeygja: 225 kg. (Ísl.met í opnum flokki og M1)
Bekkpressa: 130 kg. (Ísl.met í M1)
Réttstöðulyfta: 225 kg. (Ísl.met í opnum flokki og M1)

Samanlagt: 580 kg sem gefa 105,7 GL IPF stig

Kristín var efst í kjörinu á íþróttamanneskju ársins hjá ÍA 2020, 2021 og 2022. Hún skrifaði sögu á Akranesi árið 2020 þegar hún varð fyrsti einstaklingurinn sem stundar kraftlyftingar til þess að hljóta þennan titil hjá ÍA. 

Kristín keppir eins og áður segir í klassískum kraftlyftingum (einnig kallað „á kjötinu“), þar sem keppendur lyfta án sérstaks stuðningsbúnaðar eins og lyftingasloppa eða sérstakra búa, en mega nota belti og hnéhlífar.