Markús Páll Ellertsson, leikmaður ÍA, var valinn efnilegasti leikmaður Bestu deildar karla hjá KSÍ. Það eru leikmenn deildarinnar sem standa að þessu kjöri í samvinnu við KSÍ. 

Framherjinn kom til ÍA í mars á þessu ári eftir stutta dvöld hjá ítalska liðinu Trieste en hann er uppalinn hjá Fram. Markús Páll, sem er fæddur árið 2006, skoraði alls 15 mörk – í 27 leikjum. Hann var næst markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2026. 

Pálmi Haraldsson, stjórnarmaður KSÍ, afhenti Markúsi Páli viðurkenninguna fyrir lokaleik ÍA í deildinni gegn Keflavík sem fram fór s.l. laugardag í Akraneshöllinni.