Þórður Páll Sölvason var nýverið valinn í lokahóp U-15 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu sem keppir á UEFA Development móti í Austurríki. 

Mótið fer fram dagana 27. okt – 3. nóvember og þar leikur Ísland gegn Austurríki, Grikklandi og Spáni. 

Ómar Ingi Guðmundsson er þjálfari liðsins en alls eru 20 leikmenn í hópnum sem fer á mótið. 

Þórður Páll Sölvason var í lykilhlutverki í frábæru liði 3. flokks karla í sumar en liðið vann bæði Íslandsmeistara – og bikarmeistaratitilinn, auk þess að sigra á alþjóðlega mótinu Rey Cup. 

Á þessu ári hefur Þórður Páll æft með meistaraflokki ÍA og verið í leikmannahóp í Bestu deildinni. 

Hópurinn er þannig skipaður: 

  • Agnar Nóel Hallsson – Breiðablik
  • Benjamín Nói Svavarsson – FH
  • Fannar Helgi Kristinsson – FH
  • Guðmundur Árni Guðrúnarson – FH
  • Jón Mikael Gestsson – FH
  • Víkingur Hrafn Þórhallsson – FH
  • Adam Árnason – Getafe
  • Markús Allan Bett – HK
  • Ómar Snær Ívarsson – HK
  • Sölvi Rafn Einarsson – HK
  • Þórður Páll Sölvason – ÍA
  • Atli Hrafn Hlynsson – KA
  • Hermann Hrafn Guðlaugsson – KA
  • Novak Tufegdzic – Malmö FF
  • Unnar Jóhannesson – Selfoss
  • Guðni Bent Helgason – Tindastóll
  • Guðmundur Brynjar Wehmeier – Valur
  • Víkingur Otri Andersen – Valur
  • Franciszek August Dabrowski – Völsungur
  • Jóel Ingi Eysteinsson – Völsungur