Afgerandi niðurstaða í kosningu um framtíð strompsins

Sementsstrompurinn á Akranesi er „feigur“ ef marka má niðurstöðu kosningu sem fram fór hjá Akraneskaupstað. Um var að ræða ráðgefandi skoðanakönnun á meðal íbúa Akraness.

Alls tóku 1.095 þátt.  Niðurstaðan afgerandi, 94,25% kusu að strompurinn yrði felldur eða 1.032 en aðeins 5,75% (63 íbúar) kusu að strompurinn ætti að standa áfram. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar.

Niðurstaðan var lögð fram í bæjarráði í dag 26. apríl og lagði bæjarráð til að þessi niðurstaða yrði höfð til hliðsjónar við frekari skipulagningu á áframhaldandi uppbyggingu á Sementsreit. Bæjarstjóra var þar falið að fylgja málinu eftir til skipulagsfulltrúa bæjarins.



„Við erum mjög ánægð með þátttöku íbúa í þessari kosningu og með niðurstöðu hennar. Ljóst er að íbúar vilja verja fjármunum bæjarins í aðra hluti en viðhald á sementsstrompi og fögnum við þessu aukna lýðræði í stórum verkefnum sem bærinn er með, þetta verður aðeins byrjunin að því. Bærinn mun vitaskuld halda í þá atvinnusögu sem Sementsverksmiðjan kom með hingað til Akraness og útbúa minnisvarða um hana. Næstu skref hjá okkur er að klára skipulags svæðisins til undirbúnings niðurrifs sementsstrompsins,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi.

Til samanburðar þá tóku 2.382 þátt í skoðanakönnun á skagafrettir.is varðandi framtíð strompsins. Þar voru 66% á þeirri skoðun að rífa ætti strompinn, 22,2% vildu að hann yrði rifinn en ummerki eða minnisvarði yrði gerður um strompinn, og 11,8% vildu að strompurinn yrði áfram á sínum stað.