Landmælingar á meðal fyrirmyndarstofnana

Landmælingar Íslands eru á meðal fyrirmyndarstofnana samkvæmt könnun sem stéttarfélag í almannaþjónustu og fjármála- og efnahagsráðuneytið standa fyrir,

Niðurstöður úr könnuninni Stofnun ársins 2018, sem SFR – voru kynntar við athöfn á Hilton Nordica hótelinu þann 9. maí.

Í flokki meðalstórra stofnana voru Landmælingar Íslands í 5. sæti og raða sér þar með meðal fyrirmyndarstofnana árið 2018.

Könnunin er ein viðamesta könnun á vinnuumhverfi hjá íslenskum stofnunum en starfsmenn Landmælingar Íslands hafa frá upphafi hennar tekið þátt og hefur stofnunin ávallt verið meðal þeirra efstu.

Hjá Landmælingum Íslands er lögð áhersla á að starfsumhverfið sé aðlaðandi og fjölskylduvænt, einnig að fagleg þekking, starfsþróun, sveigjanleiki og hvatning séu ríkjandi.

Þá hefur stofnunin fengið jafnlaunavottun og unnið er samkvæmt grænum skrefum í opinberum rekstri. Sú góða einkunn sem starfsmenn gefa vinnustað sínum ber vott um góða stjórnun, góðan starfsanda og að stefnum og markmiðum í mannauðsmálum sé fylgt eftir.