Kvennalið ÍA skoraði 11 mörk gegn engu í stórsigri liðsins gegn Sindra frá Höfn í Hornafirði í Inkasso-deildinni í kvöld.
Sigurinn var mikilvægur fyrir ÍA sem lagaði markatöluna verulega með þessum sigri. Unnur Ýr Haraldsdóttir skoraði fimm mörk í leiknum.
ÍA er í fjórða sæti deildarinnar með 12 stig í fjórða sæti deildarinnar en Keflavík er efst með 13 stig.
Nánar er fjallað um leikinn á heimasíðu ÍA.
Auglýsing