Skagamaðurinn Andri Jónsson var fyrirliði Íslands í 3-0 sigri landsliðsins gegn Írum á Special Olympics World Games sem fram fara í Abu Dhabi. Andri fagnaði 31 árs afmæli sínu í dag og er dagurinn því eftirminnilegur fyrir Andra.
Guðmundur Hafliðason skoraði tvö mörk og Gabriel Óskar Halldórsson eitt í leiknum í dag.
![](https://skagafrettir.is/wp-content/uploads/2019/03/54206301_2211538062202488_8511441509160058880_o-1132x670.jpg)
Ísland hefur náð frábærum árangri í knattspyrnunni á þessu móti. Það er ljóst að Ísland leikur til úrslita um efsta sætiðá á þriðjudaginn. Lokaleikur liðsins í riðlakeppninni er á mánudaginn gegn Eistlandi.
Auglýsing
Auglýsing