Það var góð stemning og fjölmenni á fyrsta leik tímabilsins hjá ÍA í næst efstu deild Íslandsmótsins í körfubolta karla sem fram fór í kvöld.  

ÍA féll úr Bónus – deildinni á síðustu leiktíð, efstu deild, en liðið er til alls líklegt miðað við 106:77 sigur gegn liði Selfoss í Avair höllinni við Jaðarsbakka. 

Lið ÍA er mikið breytt frá því á síðustu leiktíð – og margir áhugaverðir leikmenn sýndu góða takta. 

Hjalti Vilhjálmsson er nýr þjálfari hjá ÍA en hann er þaulreyndur reynslubolti og verður gaman að fylgjast með þróun liðsins á næstu vikum. Ungir leikmenn fengu tækifæri í þessum leik, þeir fengu að gera mistök, og upplifa raunveruleikann á þessu getustigi án filters. 

Skagamenn voru mun betri en gestirnir í þessum leik. 

Miðherjinn Gojko Sudzum var stigahæstur með 21 stig og 12 fráköst en hann lék aðeins í 22 mínútur af alls 40. Sudzum er án efa einn sá allra besti sem hefur leikið hér á landi – og flest lið í efstu deild væru til að vera með Sudzum í sínum röðum.

Igor Maric, aðstoðarþjálfari ÍA, sýndi í kvöld að hann verður einnig í lykilhlutverki sem leikmaður. Maric, sem er í toppformi á fimmtugsaldri, skoraði 15 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Maric er frábær viðbót við leikmannahóp ÍA og gefur virkilega mikið af sér. 

Leikstjórnandinn Sölvi Ólason, sem kemur úr liði Breiðabliks, átti frábæran leik í frumraun sinni. Sölvi skoraði 16 stig, gaf 10 stoðsendingar, og tók 8 fráköst á aðeins 25 mínútum. Virkilega vel gert. Kvikur, kraftmikill og áræðinn, með gott auga fyrir því sem er að gerast á vellinum. 

Framherjinn Þórarinn Gunnar Óskarsson var einnig að leika sinn fyrsta leik fyrir ÍA í deildarkeppni. Hann kemur úr röðum Vals en lék með liði Fylkis á síðustu leiktíð. Þórarinn er mikill íþróttamaður og mætir til leiks í sínu allra besta líkamlega ástandi. Hann skoraði 15 stig og tók 4 fráköst. Skotnýting hans var með eindæmum góð – eða 87%. Kraftmikill leikmaður sem gaman verður að fylgjast með í vetur. 

Unglingalandsliðsmaðurinn Pétur Steinn Gunnarsson, sem er í 10. bekk Grundaskóla, lék sinn fyrsta leik í næst efstu deild með ÍA. Hinn 15 ára ungi, Pétur Steinn, var áræðinn og kröftugur í hlutverki leikstjórnanda ÍA – og áhorfendur kunnu vel að meta framlag hans. 

Fyrirliðinn Aron Elvar Dagsson átti fínan leik – með 7 stig og bróðir hans Marinó Ísak skoraði 4 stig. 

Bandaríkjamaðurinn Marcus Tsohonis í liði ÍA á mikið inni – en hann hefur glímt við meiðsli frá því hann kom á Akranes. Tsohonis er því óskrifað blað en hann er þaulreyndur atvinnumaður – og stuðningsmenn ÍA búast við miklu frá Tsohonis sem skoraði 9 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Sá sem þetta skrifar leggur til að stuðningsmenn ÍA andi inn og út – og gefi Tsohonis tíma til að ná fyrri styrk. 

Eins og áður segir er framundan áhugavert tímabil hjá liði ÍA – og næsti leikur liðsins er grannaslagur gegn liði Skallagríms á útivelli föstudaginn 9. október í Borgarnesi. 

Tölfræði leiksins er hér:

Myndasyrpa frá leiknum er hér: 