Efnilegustu kylfingar landsins keppa á Garðavelli um helgina


Það verður mikið um að vera á Garðavelli um helgina þar sem að fyrsta mót tímabilsins á Íslandsbankamótaröð unglinga fer fram á Akranesi.

Þar mæta til leiks efnilegustu kylfingar landsins en keppt er í fjórum aldursflokkum hjá báðum kynjum.

Alls eru 122 keppendur skráðir til leiks. Keppni hefst í dag hjá tveimur elstu aldurshópunum, 19-21 árs og 17-18 ára en þeir aldurshópar leika 54 holur eða þrjá keppnishringi á þremur dögum.

Á laugardag hefst keppni hjá tveimur yngstu aldurshópunum, 14 ára og yngri og 15-16 ára. Þeir aldurshópar leika tvo 18 holu hringi á tveimur dögum.

Alls eru átta keppendur frá Golfklúbbnum Leyni.

  • Bára Valdís Ármannsdóttir
  • Björn Viktor Viktorsson
  • Elsa Maren Steinarsdóttir
  • Gunnar Davíð Einarsson
  • Ingimar Elfar Ágústsson
  • Tristan Freyr Traustason
  • Valdimar Ólafsson
  • Þorgeir Örn Bjarkason