Bjarni stóð á toppi Everest í morgun – tveir Skagamenn hafa klifið hæsta fjall heims


Skagamaðurinn Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International, náði í morgun að standa á hæsta tindi veraldar á fjallinu Everest. Frá þessu er greint á mbl.is.

Bjarni er fæddur árið 1968 fagnaði því 50 ára afmæli sínu á síðasta ári.

Bjarni er níundi Íslendingurinn sem nær á toppinn á hæsta fjalli heims. Á þessum fámenna lista Íslendinga sem hafa náð þessu afreki eru tveir Akurnesingar. Leif­ur Örn Svavars­son og Lýður Guðmunds­son voru einnig á toppi Everest í morgun en Leifur Örn var þar í annað sinn.

Einn af þessum níu sem hafa nú þegar klifið Everest er Skagamaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson.

Ingólfur náði tind­in­um 21. maí árið 2013. Hann stóð þá á fimm­tugu og var elsti Íslend­ing­ur­inn og eini ís­lenski af­inn sem hafði gengið á hæsta fjall heims. Ingólfur er eigandi fasteignasölunnar Valhallar. Hann var í fremstu röð í sundíþróttinni á árum áður og keppti fyrir ÍA.

Ingólf­ur Geir Giss­ur­ar­son og Mar­grét Svavars­dótt­ir, þegar hann kom heim til Íslands eftir Everest árið 2013. Björn Ólafs­son, Ein­ar K. Stef­áns­son og Hall­grím­ur Magnús­son voru fyrstu Íslendingarnir sem fóru á topp Everest þann 21. maí árið 1997.

Har­ald­ur Örn Ólafs­son gekk næst­ur Íslend­inga á þetta hæsta fjall heims og stóð á tindi Ev­erest 16. maí 2002.

Ingólf­ur Geir Giss­ur­ar­son náði tind­in­um 21. maí árið 2013. Hann stóð þá á fimm­tugu og var elsti Íslend­ing­ur­inn og eini ís­lenski af­inn sem hafði gengið á hæsta fjall heims.

Leif­ur Örn Svavars­son náði tindi Ev­erest 23. maí. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem hef­ur farið norður­leiðina á Ev­erest, en hún er tækni­lega erfiðari en suður­leiðin. Leif­ur Örn hef­ur einnig komið á báða pól­ana.

Vil­borg Arna Giss­ur­ar­dótt­ir er eina íslenska konan sem hefur náð á Everest en hún fór á toppinn í maí árið 2017.

Bjarni er eins og gefur að skilja mikill áhugamaður um fjallgöngur og hefur hann meðal annars klifið hæsta fjall Suðurskautlandsins, Mt. Vinson. Nú bætir Bjarni um betur og bætti hæsta fjall heims.

Everest er hæsta fjall jarðar, alls 8.844,43 metrar yfir sjávarmáli samkvæmt opinberum mælingum kínverska ríkisins frá október 2005.

Meira en 4000 manns hafa klifið fjallið en yfir 200 manns hafa látist við það.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/02/08/bjarni-klifur-everest-i-mai-einn-skagamadur-hefur-nad-a-toppinn/