Vladimír Pútín opnaði hátækniverksmiðju sem Skaginn 3X setti upp


Íslensku tæknifyrirtækin Skaginn 3X, Frost og Rafeyri hafa sett upp leiðandi tæknibúnað í verksmiðjunni, sem staðsett er á Shikotan-eyju í Kúríleyja-klasanum við austurströnd Rússlands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækjunum.

Það var sjálfur forseti Rússlands, Vladimír Pútín, sem ræsti uppsjávarverksmiðjuna. Gidrostory á Eastern Economic Forum í Vladivostok er eigandi verksmiðjunnar.

Athöfnin fór fram í gær en þess má geta að Shikaton-eyja er í um 14.000 km. fjarlægð frá Akranesi

Fyrirtækin undirrituðu samninginn um uppsetninguna á síðasta ári og virði samningsins hleypur á milljörðum íslenskra króna.

Verksmiðjan er búin heildarlausnum frá fyrirtækjunum þremur til að flokka, pakka og frysta 900 tonn af uppsjávarfiski á sólarhring.

„Við hjá Skaganum 3X erum einstaklega stolt af verksmiðjunni og þakklát fyrir tækifærið til þess að taka þátt í nútímavæðingu rússneska sjávarútvegsins,” segir Pétur Jakob Pétursson, sölustjóri Skagans 3X í Rússlandi.

„Íslenskur sjávarútvegur er sjálfbær og einn sá tæknivæddasti í veröldinni. Okkur hefur tekist að einblína á gæði vörunnar og þar af leiðandi fengið hærra verð fyrir minni heildarafla. Tækni og sjálfvirkni hefur spilað stórt hlutverk og stuðlað að eftirspurn eftir íslenskri þekkingu og lausnum,” segir Pétur Jakob.

Skaginn 3X hefur á náð miklum árangri í heildarlausnum við vinnslu á uppsjávarfiski. Fyrirtækið hannaði og setti meðal annars upp búnað með afkastagetu allt að 1.300 tonn á sólarhring fyrir færeyska félagið Varðin Pelagic. Færeyska verksmiðjan er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og er staðsett á Suðurey. Frost og Rafeyri komu einnig að verkefninu fyrir Varðin Pelagic.

Skaginn 3X hefur nýverið lokið smíði á uppsjávarverksmiðju um borð í verksmiðjuskip fyrir evrópska útgerðarfyrirtækið France Pelagique, sem byggir á þeirri tækni sem Skaginn 3X hefur þróað fyrir landvinnslur á undanförnum árum.

Eastern Economic Forum er vettvangur Rússa til þess að kynna landið og stuðla að erlendri fjárfestingu.

Eigandi Gidrostroy-sjávarútvegsfyrirtækisins Alexander Verkhovskiy var viðstaddur þegar Pútín ræsti verksmiðjuna á þriðja degi ráðstefnunnar, sem hófst á mánudaginn.

http://localhost:8888/skagafrettir/2019/04/09/skaginn-3x-og-frost-londudu-milljardasamning-i-russlandi/