Indíana Björk fékk verðlaun úr minningarsjóði Guðbjarts Hannessonar


Minningarsjóður Guðbjarts Hannessonar veitti í fyrsta sinn verðlaun við brautskráningu Tómstunda- og félagsmálafræðinga á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Verðlaunin eru ætluð einstaklingum er ljúka námi með fyrstu einkunn, skila framúrskarandi lokaverkefni, hafa unnið óeigingjarnt starf sem fulltrúar nemenda í stjórn deildar og verið virk í félagslífi. Indíana Björk Birgisdóttir hlaut verðlaunin að þessu sinni.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá minningarsjóði Guðbjarts Hannessonar.

Guðbjartur eða Gutti eins og hann var ávallt kallaður af samstarfsmönnum sínum var fæddur á Akranesi 3. júní 1950. Hann lauk kennaraprófi KÍ 1971, tómstundakennaraprófi frá Seminariet for Fritidspædagoger í Vanløse í Danmörku 1978, framhaldsnámi í skólastjórn KHÍ 1995 og meistaraprófi frá Kennaradeild Lundúnaháskóla (Institute of Education, University of London) 2005.

Guðbjartur var lengst af starfsævi sinnar farsæll skólastjóri Grundaskóla á Akranesi en gegndi einnig ýmsum trúnaðarstörfum fyrir bæjarstjórn Akraness sem bæjarfulltrúi, formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar. Hann gegndi lengi trúnaðarstörfum fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og fjölmörg fyrirtæki, félög og stofnanir. Hann var alþingismaður fyrir Norðvesturkjördæmi 2007-2015. Gengdi ábyrgðarmiklum hlutverkum innan ríkisstjórnar Íslands. Hann var forseti alþingis 2009, félags-, tryggingamála- og heilbrigðisráðherra 2010 og velferðarráðherra 2011–2013.

Guðbjartur var mjög virkur í margvíslegri félagsstarfsemi. Hann var erindreki Bandalags íslenskra skáta og alla tíð virkur félagi í Skátafélagi Akraness. Gutti var einnig virkur þátttakandi í íþróttahreyfingunni og sinnti fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Íþróttabandalag Akraness.

Í menntamálum kom Guðbjartur víða við og var virkur í fagþróun kennara og skólastjórnenda. Gutti var einn af þeim fyrstu sem sóttu sér formlega menntun sem tómstunda- og frístundafræðingur. Hann var frumkvöðull í að tengja félags- og tómstundamenntun við aðra uppeldismenntun. Sem kennari og skólastjóri lagði hann ávallt áherslu á góða líðan nemenda og mikilvægi þess að vinna skipulega með tómstundir í skólastarfinu. Í þeirri viðleitni sinni stóð hann m.a. að útgáfu fræðsluefnis um öflugt foreldrastarf og fræðsluefni um tómstundir og félagsstarf. Uppeldis- tómstunda- og menntamálum sýndi hann ávallt mikinn áhuga og umhyggju og þeirri hugsjón er þessum verðlaunum ætlað að halda á lofti. Guðbjartur lést 23. október 2015.