Vel heppnað lokahóf yngri flokka KFÍA


Lokahóf yngri flokka ÍA í knattspyrnu fór fram í Akraneshöllinni nýverið.
.
Fjölmenni mætti á svæðið þar sem iðkendur fengu að spreyta sig á knattþrautum og vítaskotum þar sem þjálfarar yngri flokka félagsins stóðu vaktina.

Eftir það var boðið upp á pylsupartý samhliða afhendingu á viðurkenningum.

Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:

Leikmenn ársins í 5. flokki kvenna:
Sunna Rún Sigurðardóttir
Vala María Sturludóttir
Kolfinna Eir Jónsdóttir

Leikmenn ársins í 5. flokki karla:
Arnór Valur Ágústsson
Jón Þór Finnbogasson
Ísak Davíð Þórðarson

Viðurkenningar í 4. flokki kvenna:
Besti leikmaðurinn: Katrín María Ómarsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Birna Rún Þórólfsdóttir
Mestu framfarir: Salka Hrafns Elvarsdóttir

Viðurkenningar í 4. flokki karla:
Besti leikmaðurinn: Logi Mar Hjaltested
Efnilegasti leikmaðurinn: Haukur Andri Haraldsson
Mestu framfarir: Sveinn Svavar Hallgrímsson

Viðurkenningar í 3. flokki kvenna:
Besti leikmaðurinn: Arndís Lilja Eggertsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn: Dagbjört Líf Guðmundsdóttir
Mestu framfarir: Þórunn Sara Arnarsdóttir

Viðurkenningar í 3. flokk karla:
Besti leikmaðurinn: Ingi Þór Sigurðsson
Efnilegasti leikmaðurinn: Ármann Ingi Finnbogason
Mestu framfarir: Ólafur Haukur Arillíusson

Stínubikarinn: Lilja Björg Ólafsdóttir
Donnabikarinn: Ingi Þór Sigurðsson