Viktor Elvar fékk glæsilega kosningu í stjórn GSÍ


Kosið var í stjórn Golfsambands Íslands í dag á þingi GSÍ sem fram fór í Laugardalshöll. Alls voru 11 einstaklingar sem gáfu kost á sér í stjórnina og 10 þeirra voru kjörnir.

Viktor Elvar Viktorsson bauð sig fram og fékk hann 138 atkvæði af alls 141 mögulegum. Glæsileg innkoma hjá Skagamanninum. Frá þessu er greint á golf.is

Stjórn GSÍ er þannig skipuð. Efri röð frá vinstri. Jón Steindór Árnason, Ólafur Ingvar Arnarson, Páll Sveinsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Hansína Þorkelsdóttir, Jón B. Stefánsson, Brynjar Geirsson framkvæmdastjór. – Viktor Elvar Viktorsson, Hulda Bjarnadóttir, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ, Kristín Guðmundsdóttir og Hörður Geirsson. Mynd/[email protected]

Alls voru 143 atkvæði greidd á golfþinginu í stjórnarkjörinu og voru 141 þeirra gild. Atkvæðin komu frá 39 golfklúbbum af alls 63.

Þrír sem kjörnir voru í stjórn GSÍ fengu fullt hús atkvæða í kosningunni í dag, eða 141 atkvæði.

Haukur Örn Birgisson var einn í framboði í forsetaembættið og var hann því sjálfkjörinn.

Eftirtaldir skipa stjórn GSÍ. Haukur Örn Birgisson, forseti, aðrir í stjórn eru: Hansína Þorkelsdóttir (141 atkvæði), Hörður Geirsson (141 atkvæði), Kristín Guðmundsdóttir (141 atkvæði), Páll Sveinsson (139 atkvæði), Hulda Bjarnadóttir (138 atkvæði), Viktor Elvar Viktorsson (138 atkvæði), Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (136 atkvæði), Jón Steindór Árnason (135 atkvæði), Jón B. Stefánsson (133 atkvæði) og Ólafur Ingvar Arnarson (108 atkvæði).

Margeir Viljálmsson fékk 60 atkvæði og náði því ekki kjöri.

Páll Sveinsson, Viktor Elvar Viktorsson og Ólafur Ingvar Arnarson eru nýir í stjórn GSÍ. Eggert Ágúst Sverrisson, Bergsteinn Hjörleifsson og Gunnar K. Gunnarsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs í stjórn GSÍ.