Steinunn Inga tekur við sem nýr skólameistari FVA


Steinunn Inga Óttarsdóttir hefur verið skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.

Settur mennta- og menningarmálaráðherra í því máli, Svandís Svavarsdóttir, skipaði Steinunni í embættið, til fimm ára, frá og með 1. janúar 2020.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðs Íslands.

Steinunn Inga er starfandi framkvæmdastjóri Félags framhaldsskólakennara og var áður áfangastjóri bóknáms við Menntaskólann í Kópavogi.

FVA.

Steinunn Inga er MA í hagnýtri menningarmiðlun (2019), diplóma í vettvangsnámi í stjórnun framhaldsskóla (2012), diplóma í mannauðsstjórnun (2008), MA í íslenskum bókmenntum (1996), M.Paed í íslensku (1994) og lauk kennaraprófi B.Ed. árið 1991.

Fjórar umsóknir bárust um embættið frá eftirtöldum aðilum:

Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameistari FVA
Steinunn Inga Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá Félagi framhaldsskólakennara
Steingrímur Benediktsson, framhaldsskólakennari.
Þorbjörg Ragnarsdóttir, aðstoðarskólameistari FVA.