Hallbera Guðný heiðruð fyrir 100 A-landsleiki fyrir Ísland


Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir, sem leikur með knattspyrnuliði Vals, var um s.l. helgi heiðruð fyrir að hafa leikið 100 landsleiki með A-landsliði Íslands.

Alls fengu fjórir leikmenn slíkar viðurkenningar á ársþingi KSÍ sem fram fór í Ólafsvík.

Hallbera Guðný lék sinn 100. A landsleik gegn Kanada á Algarve mótinu á síðasta ári. Hallbera, sem er fædd árið 1986 á Akranesi, hóf landsliðsferilinn einnig á Algarve, árið 2008. Í dag hefur hún leikið 109 landsleiki og skorað í þeim 3 mörk.

Leikmennirnir fjórir eru auk Hallberu, Sara Björk Gunnarsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Rakel Hönnudóttir.

Sara Björk Gunnarsdóttir

Sara lék sinn 100 landsleik gegn Japan á Algarve mótinu árið 2017. Hún er fædd árið 1990 og lék sinn fyrsta landsleik gegn Slóveniu ytra, árið 2007. Sara hefur leikið 129 landsleiki og skorað í þeim 20 mörk.

Fanndís Friðriksdóttir

Lék sinn 100. A landsleik gegn Suður Kóreu ytra á síðasta ári. Fanndís, sem er fædd árið 1990, lék sinn fyrsta landsleik á Algarve gegn Dönum árið 2009. Fanndís hefur í dag leikið 106 leiki og skorað í þeim 17 mörk.

Rakel Hönnudóttir

Lék sinn 100 A landsleik í síðasta leik liðsins á nýliðnu ári, 0 – 6 sigri gegn Lettum ytra. Rakel, sem fædd er árið 1988, hóf sinn feril á Algarve mótinu árið 2008 í 2-0 sigri á Pólverjum, einmitt í sama leik og Hallbera hóf sinn landsliðsferil. Í þessum 100 landsleikjum hefur Rakel skorað 9 mörk.

Allar þessar frábæru landsliðskonur eru enn þá í eldlínunni og verða því landsleikirnir töluvert fleiri á næstunni.